Skip to content

Karfa

Karfan þín er tóm

Gleðiskruddan

Sale price5.400 kr

Dagbók fyrir börn og ungmenni sem eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan.

Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra. Svokölluð jákvæð inngrip hafa reynst áhrifarík í því að viðhalda hamingju og öðrum jákvæðum tilfinningum ásamt því að minnka þunglyndi og kvíða

Dagbókin telur 100 daga þar sem jákvæða inngripið þrír góðir hlutir er í forgrunni. Þar skráir barnið niður þrjá góða hluti sem áttu sér stað þann daginn. Dögunum er skipt upp í 21 þemu; tilfinningarstyrkleikahamingjubjargráð við streitu og kvíðagróskuhugarfartrú á eigin getusjálfstalsjálfsvinsemdmarkmiðseiglusvefnhreyfinguútiverunúvitundöndunað njótaflæðiþakklætigóðvildbjartsýni og von. Hvert og eitt þessara þema er útskýrt á einfaldan hátt til að auðvelda skilning.
Á hverjum degi má einnig finna gleðimola eða gleðifræ dagsins sem tengist þemanu hverju sinni í formi hugleiðinga, tilvitnana, áskorana og æfinga.

Markmið Gleðskruddunnar er að efla sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og þrautseigju, ásamt því að auka jákvæðar tilfinningarbjartsýni og vellíðan.

Gleðiskruddan
Gleðiskruddan Sale price5.400 kr