Alda [‘alːta] Gel Moisturiser

Sale price11,990 kr
Sold out

Alda [ˈalːta] gel moisturiser er létt gel rakakrem sem er hannað til að endurheimta og vernda ysta lag húðarinnar. Rakakremið vinnur einnig gegn öldrun húðarinnar og ýmsum áskorunum eins og þurri húð, útbrotum, bólum og sólbruna. Rakakremið inniheldur íslensk sjávarensím og hyaluronic sýru.

Sjávarensímin slípa húðina á mildan hátt og örva kollagenframleiðslu, án þess að raska örveruflóru húðarinnar.

Hyaluronic sýran, sem er náttúruleg fjölsykra, gerir gelið einstaklega rakagefandi og veitir húðinni aukinn ljóma, fyllingu og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Gelið hentar öllum húðgerðum, þar á meðal blandaðri og feitri húð.

Nota má gelið eitt sér, eða á eftir Alda [ˈalːta] essence serum fyrir rútínu sem endurnýjar, nærir og verndar. Berið eina pumpu, kvölds og morgna, á hreina húð á andlit, háls og bringu. 

Innihaldslýsing: 

Glycerin, Aqua, Sorbitol, Alcohol, Sodium
Hydroxide, Carbomer, Sodium Hyaluronate,
Tromethamine, Hydrochloric Acid, Trypsin,
Calcium Choride.