ANDREA MAACK - MUSE EXTRACT

Sale price14.500 kr

Hásumardagur, síðdegis. Glóandi himinbláminn bráðnar í rafmagnsbleikan ljóma. Bráðinn mangóís, kókoskremuð sólbrúnka, berar axlir flúraðar freknum og glitrandi sjávarmistur. Ilmertur, bleikur pipar og rjómalöguð geislamaðra glampa yfir hlýjum grunni af sandalviði og kasmír. Ilmurinn fangar sumardag sem á að lifa sem lengst og síðan tekur blíðviðrisnóttin við.

 

Áhrif: Tandurhreint hár, sólgyllt hörund og sterkur blómailmur sem umvefur þig þegar síðdegishitinn bráðnar inn í leiftrandi sólarlag.

Sérstaða: Kremuð geislamaðra, suðrænir kokteilar, sumarfrí og lífseigur musk-ilmur.

Ilmstyrkur: Extrait De Parfum


Toppnótur: Mangókrem, kókos, bleikur pipar

Miðnótur: Ilmertur (sweet pea), geislamaðra (gardenia)

Grunnnótur: Sandalviður, sedrus, kasmír

Ilmhöfundur: Domitille Michalon


Vegan-Genderless.

Framleitt á Íslandi 

 

 

Size: 15 ml