Silkimjúk líkamsolía sem endurnærir húðina með langvarandi rakagjöf og stuðlar að auknum ljóma. Formúlan er þróuð með hinum einstöku lífvirku örþörungum Bláa Lónsins sem eru ríkuleg uppspretta næringarefna og vítamína sem styðja við endurnýjun húðarinnar.
Body Oil er líkamsolía sem nærir og mýkir húðina samhliða því að veita henni sléttari og ljómandi ásýnd. Tilvalið að blanda nokkrum dropum af olíunni við Bath Salt til að búa til öflugan líkamsskrúbb sem bætir áferð húðarinnar.
- Mildur og frískandi ilmur
- Skilur ekki eftir sig fituga áferð
- Prófað af húðlæknum
- Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
- Hentar öllum húðgerðum og grænkerum