STEINASJAMPÓSÁPA MEÐ ÞARA
FRÍSKANDI SJAMPÓSTYKKI MEÐ ÞARA OG HREINUM ILMOLÍUM.
-MEÐ PIPARMYNTU OG PATSJÚLÍ.
STEINASÁPURNAR FRÁ URÐ ERU HANDGERÐAR OG INNIHALDA ÍSLENSK HRÁEFNI.
Lögun þeirra minnir á brotna hrafntinnu og er táknræn fyrir hina viðkvæmu íslensku náttúru. Hrafntinnan er friðuð og stundum nefnd steinn sannleikans.
Sápurnar eru í taupokum sem hægt er að nota ef ferðast á með þær. Sápurnar eru með áföstum spotta til að auðvelda notkun.
Sjampóstykkið hentar vel fyrir viðkvæma, exem og feitan hársvörð.
Notkun: Bleytið stykkið og nuddið í höndum þar til freyðir, nuddið í hárið og skolið úr.
Innihaldsefni: Kókosolía (Cocos Nucifera Oil), vatn (Aqua), repjuolía (Brassica Napus Linnaeus), laxerolía (Castor oil), þari og hreinar ilmolíur.
STEINASJAMPÓSÁPA MEÐ ÞARA
Sale price2.490 kr