




BL+ Retinol Cream 0.3%
Endurnýjandi húðmeðferð sem hönnuð er til að vinna gegn öldrunareinkennum og bæta áferð húðarinnar. BL+ Retinol Cream 0.3% inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra efna sem hraða endurnýjunarferli húðfrumna, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens og lágmarka sýnileika hrukkna, svitahola og misfellna.
Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.
Með reglulegri notkun verður húðin sléttari og ljómameiri ásamt endurnýjaðri áferð. Ásýnd fínna lína og hrukkna minnkar.
- Klínískt prófað
- Án ilmefna
- Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
- Hentar venjulegum, blönduðum og olíukenndum húðgerðum
- Tilvalið fyrir þau sem eru að nota retínól í fyrsta sinn
- Vegan
- Forðist notkun á meðgöngu
Notkun:
- Berðu lítið magn í dropastærð á hreina húð að kvöldi til. Forðastu augnsvæðið.
- Byrjaðu að nota formúluna einu sinni í viku, í tvær vikur í senn. Þar á eftir tvisvar sinnum í viku, í tvær vikur.
- Þolist formúlan vel, skaltu nota hana á hverju kvöldi til að hraða frumuendurnýjun.
- Fylgdu á eftir með rakakremi ef þarf.
- Mikilvægt er að nota sólarvörn á daginn þar sem retínól eykur ljósnæmi.

BL+ Retinol Cream 0.3%
Sale price16.900 kr











