
The MuffinPuffin
Ný bók í bókaseríu Tulipop, Sögur frá Tulipop: Sætaspætan.
Þetta er önnur bókin í bókaseríunni „Sögur frá Tulipop, en fyrsta bókin, Leyniskógurinn, kom út í lok árs 2019 og fékk frábærar viðtökur.
Sætaspætan segir söguna af því þegar Freddi og Gló finna sjaldgæfan furðufugl í Sveppamýrinni. Þá hefst spennandi atburðarás þar sem markmiðið er að hjálpa fuglinum til síns heima.
Sagan var skrifuð af Signýju Kolbeinsdóttur, yfirhönnuði Tulipop og stofnanda, í samstarfi við breska handritshöfundinn Davey Moore og rithöfundinn Gunnar Helgason.
Bókin er 32 blaðsíður, í harðri kápu og fallega myndskreytt af Signýju. Hún er fullkomin fyrir eldri leikskólakrakka og yngri skólakrakka (4 til 8 ára), en vonandi mun öll fjölskyldan hafa gaman af!
.
